Fortado Decaffeinato
Frí heimsending ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira
Eiginleikar
Bragðstyrkur
Gran Lungo
Beiskja 4
Sýrustig 1
Fylling 4
Ristun 4
Kannaðu okkar öflugasta Gran Lungo kaffi, nú án koffíns. Fortado Decaffeinato býður upp á nákvæmlega sama glæsilega og djúpa karakter og hið upprunalega Fortado kaffi. Þetta er einstaklega kröftug kaffiblanda þar sem koffínskert indversk Robusta ræður ríkjum og ljáir bollanum ótrúlegan þéttleika ásamt ríkulegri froðu („crema“). Koffínskertum kólumbískum Arabica-baunum er bætt við blönduna í aðskildri ristun til að fullkomna bragðsniðið. Útkoman er ógleymanlegur kaffibolli sem einkennist af fágaðri beiskju, sterkum eikarkeim og hlýjum undirtónum af dökku kakói. Fullkomin kaffistund fyrir þau sem vilja vel ristað og kraftmikið kaffi fram eftir degi.
Innihald og ofnæmisvaldar
10 hylki af ristuðu og möluðu koffínskertu kaffi fyrir Nespresso Vertuo kerfið. Blanda af Arabica- og Robusta kaffibaunum. Pakkað í vernduðu umhverfi.
Nettóþyngd: 100 g.
Framleitt í Sviss af Nestlé Nespresso S.A.